Saturday, 15 September 2012

Danir eru líka skrýtnir


Nú eru komnar 3 vikur í Danmörku og ég er ekki frá því að mér finnist fleira skrýtið hér en í Bretlandi.
  • Hér er unnið frá 9 til 5. Ekki orð um það meir. Ef eitthvað bilar utan þess tíma eða um helgar þá verður bara að hafa það.
  • Skrifræðið er ótrúlegt. Mér gekk ágætlega að fá kennitölu og um leið og hún var komin þá hrúgaðist inn hjá mér póstur um hitt og þetta sem ég á að gera fyrir batteríið eða batteríið gerir fyrir mig. Ég er líka búin að vera í 2 vikur að stofna bankareikning. Vona að það hafist eftir helgi.
  • Á Íslandi er ekki borin virðing fyrir hjólreiðafólki. Hér er borin mikil virðing fyrir því en gangandi fólk virðist helst eiga að halda sig heima við. Ekki óalgengt að við hliðina á götu og hjólastíg sé örmjór malarstígur sem helst minnir á kindagötu. Það virðist nóg handa gangandi fólki.
  • Verðlag hér er eins og í London, alveg það sama og heima. Hef enn ekki rekist á neitt sem er ódýrara hérna. Allt sem inniheldur sykur er hins vegar óheyrilega dýrt!
  • Matvöruverslanir hér eru sér kapítuli. Held ég hafi sér pistil um þær.
  • Reglur eru reglur og það á að fara eftir þeim! Galtóm gata með engri umferð er vís með að hafa hóp af fólki uppi á gangstétt að bíða eftir græna kallinum.
  • Götur eru tómar eftir vinnutíma. Fólk virðist fara heim og halda sig þar. Ég hef hjólað heim eftir stofnæð um 18:30 og umferðin var svipuð og maður býst við í íbúðagötu snemma á sunnudagsmorgni.
  • Danir flokka ekki rusl og hvergi örlar á hvatningu til þess.
Inngangurinn heima hjá mér á Viggo Jarls vej í Virum.



Skrýtnir Bretar


Nú er ég búin að eyða 3 vikum í Bretlandi og komin yfir til Danmerkur. Í Bretlandi rakst ég á ýmislegt sem er öðruvísi en maður á að venjast:
  • Gangbrautaljós á gatnamótum eru eingöngu til skrauts. Græni kallinn þýðir eins og á Íslandi að það megi ganga yfir en rauði kallinn þýðir bara að það eigi að stoppa ef það er augljóst að annars verði keyrt yfir þig. Þetta á við hvort sem börn eru með í för eða ekki.
  • Zebrabrautir eru galdratæki. Maður þarf ekki annað en að gjóa augunum í áttina að þeim og þá stöðva allir!  (Nota Z viljandi. S í Zebra bara virkar ekki!)
  • Eggjaskerar eru óþekkt fyrirbæri. Búin að fara í ómældan fjölda verslana en hvergi eru eggjaskerar. Alveg ný upplifun hjá mér að sneiða egg ofan á brauð með eldhúshníf!
  • Hver og einasti Breti er fullfær um að keppa í göngu á Ólympíuleikum. Í London er mikið gengið og fólkið er búið að koma sér upp gríðarlegum gönguhraða. Sniglar eins og ég eru því mjög gjarna fyrir á gangstéttum.
  • Annað hvort eru Bretar alltaf að flýta sér eða þeir kunna ekki að ganga rólega. Sjá næsta lið hér fyrr ofan.
  • Þeir flokka allt í frumeindir og það er ekkert skilagjald á umbúðum.
  • Verðlag í London er nákvæmlega það sama og á Íslandi. Eina mögulega ástæðan fyrir að fara til London til að versla væri aukið vöruúrval. Svo er líka mjög auðvelt að versla þar fyrir ljótufatadag í vinnunni. J



Tilgangurinn með þessu öllu saman

Meiningin er að setja hér inn fréttir af okkur Sigga og flækingnum á okkur um heiminn. Kannski fá að fylgja líka bollaleggingar um það sem fyrir augu ber og hvað okkur finnst um það.

Úr í búðinni í Croydon, Englandi

Næstu mánuðir verða forvitnilegir. Siggi býr og starfar í London en ég verð við mastersnám í Danmörku. Siggi starfar hjá fyrirtæki sem heitir Vyre Ltd og er í miðborg Lundúna. Ég er hins vegar í skóla sem er kallaður DTU (Danmarks Teckniske Universitet) og er í Lyngby sem er á stór-Kaupmannahafnarsvæðinu. Vonandi verður Siggi duglegur að vinna svo við höfum efni á að skjótast á milli stöku helgi.

Beðið eftir mat á pöbbanum.