Eftir að við Siggi fluttum út kom í ljós bráð þörf fyrir svona sokka. Húsakostur og kyndin er örlítið öðru vísi en við erum vön og gólfkuldi alþekkt fyrirbæri. Ég er því búin að hafa það af að prjóna 2 pör af svona sokkum og er bara nokkuð sátt með sjálfa mig! Um daginn fékk ég svo fyrirspurn um uppskriftina svo ég tók mig til og setti mína útgáfu niður á blað. Ég studdist við uppskrift sem ég fann á netinu en fannst hún svolítið ruglingsleg og svo er ég ekki heldur neitt voðalega dugleg að fara eftir uppskriftum. :)
Hér kemur svo uppskriftin:
Sjónvarpssokkar
Uppskriftin er byggð
á uppskrift frá Ístex (www.istex.is)
Sokkarnir eru úr Léttlopa og prjónaðir á prjóna nr. 6, þá
verða sokkarnir frekar grófir.
Fitja upp 60 lykkjur, þá ná sokkarnir ca. upp á miðjan legg.
Ef fitjað er upp 80 lykkjur verða þeir
vel háir.
Prjóna 4 umf. slétt prjón (1 pr slétt, 2 pr brugðið). Í
annari hverri umferð er á enda prjóns (þeim megin sem keðjulykkjan er ekki) aukið
út um 1 lykkju 3 sinnum. Þegar 4 umferðir eru búnar er prjónað garðaprjón
(slétt í báðar áttir). Þá er gott að skipta um lit og prjóna 2-3 rendur (eða
eins margar og manni sýnist) með öðrum lit. Skipt er um lit þeim megin sem
aukið var út.
Fyrsta lykkja er alltaf tekin óprjónuð fram af prjóninum. Þeim megin sem byrjað var að fitja upp er lykkjan tekin fram af með bandið framan við lykkjuna, þá myndast keðjulykkja á efri brún sokksins. Hinum megin er lykkjan tekin fram af eins og ætti að prjóna hana.
Þegar búið er að prjóna nógu langt er endað með eins röndum og
í upphafi og endað á að prjóna jafn stóran sléttan kafla og í upphafi. Muna að
taka úr 3 lykkjur eins og aukið var út í byrjun. Geymið lykkjurnar á prjóni eða
setjið þær á band.
Saumið saman sokkinn á tánni frá réttu þannig að rendurnar
passi saman. (Mér finnst þægilegast að fela endana áður en ég sauma sokkinn
saman.) Dragið síðan afganginn af tánni saman með því að þræða í gegnum
jaðarinn og festa. Sokkurinn er síðan lykkjaður saman að framan.
Ístex mælti með því að prjóna sokkinn saman (hef ekki
prjófað það) þannig: Snúa röngunni út og prjóna sokkinn saman: Prjóna sl. Í 1. L
á prj samtímis og prj er í 1. L uppfitjunarinnar, þarnæst í 2. L bæði á prj og
uppfitjun og fella af á vanalegan hátt. Þetta er gert út allan prjóninn.
Viðbót: Nú er ég búin að gera prufu með að prjóna sokkana saman eins og uppskriftin frá Ístex segir til um. Það er alveg ágæt aðferð en það er mun fallegra að lykkja þá saman og verður ekki stíft á samskeytunum.
Viðbót: Nú er ég búin að gera prufu með að prjóna sokkana saman eins og uppskriftin frá Ístex segir til um. Það er alveg ágæt aðferð en það er mun fallegra að lykkja þá saman og verður ekki stíft á samskeytunum.